Jólaísinn þeirra ömmu og mömmu

jolaisinn8_sHeimagerður ís er eitt það besta sem hægt er að hafa í eftirrétt á jólunum. Þessi uppskrift er búin að vera lengi í fjölskyldunni. Amma mín Steinunn Gísladóttir lærði að gera hann þegar hún var vinnukona í vist á Laufásveginum árið 1947. Ísinn er himneskur og yndislega einfaldur.

Amma taldi uppskriftina koma frá fjölskyldu frúarinnar sem hún vann hjá en sú frú var ættuð úr Vatnsdalnum í Austur-Húnavatnssýslu. Síðan tók mamma að gera þessa uppskrift  og tók uppskriftina með sér norður í Húnavatnssýslu til Blönduós og ísinn hefur fylgt okkar jólum síðan ég man eftir mér.

Vanilluís
1/2 l rjómi
6 egg
100 g sykur
2 tsk vanilludropar

Aðferð
Skiljið að eggjahvítur og eggjarauður og setjið í skálar sem hægt er að þeyta þær í.

jolaisinn1_s

Byrjið á því að þeyta saman eggjarauður og 100 grömm af sykri þar til blandan verður þykk og ljósgul.

jolaisinn2_s

Næst eru eggjahvíturnar þeyttar vel þar til þær verða léttar og þykkar.

jolaisinn3_s

Rjóminn er þeyttur seinast en setjið 2 tsk af vanilludropum út í rjómann áður en þið þeytið hann. Síðan er þeytta rjómanum bætt út í eggjarauðurnar og hrært varlega saman.

jolaisinn4_s

Eggjahvíturnar fara seinast út í blönduna. Best er að hræra þessa blöndu varlega saman með sleikju.

jolaisinn5_s

Þegar búið er að blanda ísinn er hann setur í form. Þið fáið um það bil tvo lítra af ís út úr þessari blöndu. Sniðugt er að setja þessa blöndu í sérstakt ísform eða í einhver ísbox sem þið hafið geymt. Ef ykkur langar í súkkulaðibitaís, þá getið þið saxað uppáhalds súkkulaðið ykkar í litla eða stóra bita og hrært saman við blönduna. Ísinn er glerharður þegar hann er tekinn úr frysti, þannig að það er gott að taka hann út um það bil 1 klst fyrir eftirrétta gleði og geyma í ískápnum, þá ætti hann að vera orðin mátulega mjúkur.

jolaisinn7_s

Verði ykkur að góðu

7 thoughts on “Jólaísinn þeirra ömmu og mömmu

  1. Sæl. Ég hef aldrei búið til ís og þetta er eina uppskriftin sem ég fann þar sem eggjahvítan er notuð líka. Hver finnst þér vera helsti munurinn á þessari uppskrift og þeim sem nota bara rauðuna, rjóma, sykur og vanillu? Með kveðju, Kristbjörg

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s